ÍFR

Sunnudagur, 5. September 2010

Forsíđa | Um Félagiđ | Hafa Samband

Fréttir

Ćfingar ađ hefjast

Æfingar hjá öllum deildum ÍFR hefjast 1. september.

Heimsókn frá Dannenberg

Hér á landi er staddur  13 manna hópur frá MTV-Dannenberg í Þýskalandi. Þetta félag í Þýskalandi hefur verið í áralöngum samskiptum við bogfimideild ÍFR og hafa t.d. undanfarin ár verið haldinn svökölluð Internetmót milli félagana þar sem samskipti milli félaganna um úrslit og þ.h. hafa farið um netið. Félagar í ÍFR hafa á undanförnum árum verið duglegir við að heimsækja Dannenberg en þetta er í annað skiptið sem þeir koma hingað hið fyrra var árið 2002.
Bogfiminefnd ÍFR mun gangast fyrir miðnæturmóti í bogfimi á Hamranesvelli við Hafnarfjörð þann 26. júní næstkomandi af þessu tilefni. Nánar má fræðast um mótið hér.

Ráđstefna međ fremstu íţróttasálfrćđingum Evrópu

Þann 30. júní munu níu af fremstu íþróttasálfræðingum Evrópu koma til landsins og halda ráðstefnu um íþróttasálfræði og afreksíþróttir í samstarfi við ÍSÍ og Háskólann í Reykjavík. Einkunnarorð ráðstefnunnar er hagnýting.  Þátttakendur munu læra hagnýta hluti til að auka færni sína í aðkomu að afreksíþróttamönnum. Efni ráðstefnunnar er mjög fjölbreytt og leitast er við að það eigi erindi við alla þá sem koma að afreksíþróttastarfi svo sem þjálfara, afreksíþróttamenn, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, lækna,  íþróttafræðinga, stjórnendur í íþróttahreyfingunni og dómara.
Ráðstefnugjald er 12.000 kr.  Veittur er 50% afsláttur fyrir nemendur (láta vita hjá hvaða skóla).  Skráning fer fram á skraning@ru.is.  Hægt er að greiða þátttökugjald inn á reikning 537-26-500670, kt: 670169-0499. Þegar þátttökugjald er greitt í gegnum heimabanka þarf að senda kvittun á begga@isi.is.  Einnig verður hægt að greiða á staðnum.

Sundnámskeiđ

Sundnámskeið fyrir börn hefst 7. júní. Kennt verður í sundlaug Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Skráning fer fram í íþróttahúsi ÍFR í síma 561-8226 frá og með 1. júní. Umsjónarmaður með námskeiðinu er Júlíus Arnarsson íþróttakennari.

Ađalfundur


Aðalfundur Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík verður haldinn laugardaginn 15. maí 2010 kl. 14.00 í íþróttahúsi félagsins að Hátúni 14.

Dagskrá:

1.    Venjuleg aðalfundarstörf
2.    Önnur mál

Að loknum aðalfundi verður boðið upp á kaffiveitingar

Stjórnin

Breyttur tími getraunasölu

Nú er kominn sumartími í Evrópu og hefjast laugardagsleikirnir í Englandi því kl. 14:00
Það þýðir að getraunasalan lokar kl. 13:00

Laugardaginn 3. apríl verður opið í íþróttahúsinu frá kl. 11-13.

ÍFR sigursćlasta liđiđ á Íslandsmóti ÍF 2010

Íslandsmót ÍF fór fram 20. og 21. mars s.l.  Keppendur frá ÍFR tóku þátt í öllum íþróttagreinum sem keppt var í á mótinu. Keppnisgreinar voru bogfimi, boccia, borðtennis, lyftingar, frjálsar íþróttir og sund.
Fjölmargir Íslandsmeistaratitlar unnust og mörg Íslandsmet voru sett. Úrslit mótsins er að finna á heimasíðu ÍF.

Glæsilegu fulltrúar ÍFR, keppendur, þjálfarar og aðstoðarmenn „Til hamingju með árangurinn

Páskahátíđ ÍFR 2010

Hátíðin verður haldin í íþróttahúsi félagsins  laugardaginn 27. mars kl. 11.30 til 13.00 Allir félagsmenn eru velkomnir.

-Páskabingó-
Allir fá páskaegg
-Veitingar-



Undirbúningsnefnd

Ţátttaka fatlađra á sundmótum

Á Sundþingi Sundsambands Íslands dagana 27. og 27. febr. var tillaga þess efnis að fötluðum sundmönnum verði  heimild þátttaka á Íslandsmótum og öðrum mótum SSÍ samþykkt. Stjórn ÍFR hafði frumkvæði að því að þessi tillaga var lögð fram.  Á fundi sem haldinn var miðvikudaginn 17. febr. s.l að ósk ÍFR með framkvæmdastjóra ÍF Ólafi Magnússyni, gjaldkera ÍF Þórði Árna Hjaltested, Erlingi Jóhannsyni sundþjálfara ÍFR og Þórði Ólafssyni framkvæmdastjóra ÍFR voru þessi mál rædd. Ákveðið var á fundinum að ÍF hefði frumkvæði að því að ræða við stjórn SSÍ um þessa hugmynd. 

Internetmót ÍFR og MTV - Dannenberg

Sjötta Internetmóti ÍFR og MTV er lokið. Staðan varð 36 : 28 fyrir ÍFR. Munurinn er mun minni heldur en í fyrra. Við getum verið ánægð með árangurinn. Að loknu móti söfnuðumst við nokkur saman í félagsheimili ÍFR og vorum í beinu sambandi við MTV félaga í gegnum Skype. Þeir óskuðu okkur til hamingju með sigurinn og við þeim sömuleiðis fyrir góða keppni. Sett hefur verið upp síða sem sýnir hvernig úrslit urðu og hvernig mótið þróaðist.

Sigurvegarar á Malmö Open

Sundlið ÍFR sigraði glæsilega í stigakeppni á Malmö Open sem fram fór 13. og 14. febr. s.l.
Sundliðið skipuðu: Guðmundur Hermannsson, Hjörtur Ingvarsson, Emil Steinar Björnsson, Michel Thór Masselter, Vignir Gunnar Hauksson, Anna Kristín Jensdóttir, Thelma Björg Björnsdóttir, Sonja Sigurðardóttir og Bjarndís Sara Breiðfjörð. Þjálfarar hópsins eru Jón Þorgeri Guðbjörnsson og Erlingur Jóhannsson.

Tómas Björnsson vann til silfurverðlauna í sínum flokki í borðtennis. Þjálfari hans er Kristján Jónasson
Alls fór 25 keppendur þjálfarar og aðstoðarfólk á mótið að þessu sinni.

Nýtt Íslandsmet hjá Kristmanni

Bogaskjótifelagið Tambar í Þórhöfn í Færeyjum stóð fyrir móti Tambar Open þann 13. febrúar sl. Kristmann Einarsson tók þátt í mótinu og keppti í Compound flokki. Það er stutt frá því að segja að hann vann sinn flokk mótið fór fram með útsláttar sniði. Setti hann nýtt Íslandsmet. Sjá nánar á Íslenska bogfimivefnum.

Úrslit á Minningarmótinu 2010

Minningarmótið í bogfimi var haldið þann 13. febrúar sl. Aðeins 12 félagar tóku þátt að þessu sinni Úrslitin eru komin á bogfimivefinn.

Reykjavíkurmeistaramót í sundi

Alls setti sundlið ÍFR sjö Íslandsmet á Reykjavíkurmeistaramóti í sundi sem fór fram 29.- 30. jan. 2010.

Nafn Flokkur Sund  Aðf. Tími
Thelma Björg Björnsdóttir S5 200 frjálst 4:18,54
Thelma Björg Björnsdóttir S5 400 frjálst 8:52,75
Hjörtur Már Ingvarsson S5 200 frjálst 3:44,10
Hjörtur Már Ingvarsson S5 400 frjálst 7:43,01
Hjörtur Már Ingvarsson S5 100 frjálst 1:43,98
Hjörtur Már Ingvarsson S5 200 frjálst 3:40,28
Anna K. Jensdóttir SB5 100 bringa 2:23,80

Til hamingju með árangurinn.

Íţróttamađur Ölfus 2009

Hjörtur Már IngvarssonSundmaðurinn Hjörtur Már Ingvarsson ÍFR var á dögunum útnefndur Íþróttamaður Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2009. Hjörtur hefur staðið sig afskaplega vel í sundinu á liðnu ári. Hann náði þeim merka áfanga að vera valinn í landslið Íslands til keppni á Evrópumeistaramóti fatlaðra sem fram fór í Laugardalslauginni í október síðastliðnum. Þar vakti hann mikla athygli fyrir keppnishörku og árangur en hann setti íslandsmet í öllum greinum sem hann tók þátt í og synti í úrslitariðlum í sínum fötlunarflokki.  Á Íslandsmótinu í 25 metra braut í nóvember síðastliðinn bætti hann en Íslandsmetin í sínum greinum.
Hann hefur sett alls 21 íslandsmet á árinu sem er aldeilis frábært.
Hjörtur hefur nú sett sér það markmið að ná lágmörkum fyrir Heimsmeistaramót fatlaðra sem fram fer í Hollandi á hausti komanda.
Til hamingju Hjörtur

Bingó

Sunddeild ÍFR stendur fyrir bingó laugardaginn 23. jan. í Íþróttahúsi ÍFR og hefst bingóið kl. 13.00. Þessi fjáröflun er til styrktar keppnisferðar félagsins á Malmö Open í febr. n.k.

Góđur árangur í sundi fatlađra á RIG

Alls setti sundlið ÍFR sjö Íslandsmet á Reykjavík International Games sem fram fór 16. til 17. jan.
Þetta er glæsilegur árangur en sundliðið æfir nú af kappi fyrir Malmö Open sem fram fer 13. og 14. febrúar næstkomandi

Innanfélagsmót ÍFR í bogfimi

Innanfélagsmót ÍFR í bogfimi var haldið 16. janúar og tóku 15 félagar þátt í mótinu. Nánari upplýsingar og úrslit er að finna á Íslenska bogfimivefnum.

Hallmarsmótiđ í boccia

Hallmarsmótið í boccia er nú í fullum gangi það hófst sl. þriðjudag 12. janúar. Áætlað er að því ljúki eftir tvær vikur. Nú eru 6 ár frá því að Hallmar féll frá.

Breyttir ćfingatímar í sundi

Frá og með 11. janúar gilda eftirfarandi æfingatímar í sundinu.
Laugardalslaug
 
Mánudagar 16:30-18:30
Þriðjudagar 18:30-20:30
Miðvikudagar 16:30-18:30
Fimmtudagar 18:30-20:30
Föstudagar 17:00-19:00
Laugardagar 10:15-12:15

Síða 1/2 1 2 >