Fréttir
Skrifað af joneiriks þann 24/06/2010 - 14:41 skoðað 253 sinnum.
Hér á landi er staddur 13 manna hópur frá MTV-Dannenberg í Þýskalandi. Þetta félag í Þýskalandi hefur verið í áralöngum samskiptum við bogfimideild ÍFR og hafa t.d. undanfarin ár verið haldinn svökölluð Internetmót milli félagana þar sem samskipti milli félaganna um úrslit og þ.h. hafa farið um netið. Félagar í ÍFR hafa á undanförnum árum verið duglegir við að heimsækja Dannenberg en þetta er í annað skiptið sem þeir koma hingað hið fyrra var árið 2002.
Bogfiminefnd ÍFR mun gangast fyrir miðnæturmóti í bogfimi á Hamranesvelli við Hafnarfjörð þann 26. júní næstkomandi af þessu tilefni. Nánar má fræðast um mótið hér.
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir.
