Lyftingar hafa verið stundaðar innan Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík frá stofnun félagsins. Hér á árum áður voru lyftingar ein öflugasta grein innan félagsins og árangur á mótum erlendis mjög góður. Eftir nokkra lægð er íþróttin að sækja í sig veðrið aftur. Vonandi eiga lyftingamenn hjá félaginu eftir að hefja greinina upp á þann stall sem hún áður var. Í dag æfa að staðaldri tíu til fimmtán einstaklingar.

Lyftingar – líkamsrækt í Hátúni 14:

mánudögum kl. 14:30 – 15:30
þriðjudögum kl. 18:00 – 19:00
fimmtudögum kl. 18:00 – 19:00
föstudögum kl. 14:30 – 15:30

Viljirðu spyrja eða fá nánari upplýsingar