Sigurvegari “Sjálfvalsdeildar” er Garðar Valur. Í öðru sæti er Ásgeir Arnolds. og í því þriðja er Björn Úlfars. Búið er að greiða út vinninga fyrir lotu tvö í getraunaleikjum ÍFR. Eins og áður hefur komið fram hefjum við leikina aftur um leið og enski boltinn hefst í ágúst.

Alls hafa 35 tipparar skráð sig til þátttöku í sumartippinu (Sjá. meðf lista) og verða tippaðar 2400 raðir. Yfirtippari ætlar að upplýsa tippara um árangur á facebooksíðu ÍFR tippara sem heitir Húskerfi ÍFR. Þeir sem hafa ekki skráð sig í hópinn geta haft samband við yfirtippara sem reddar öllu eins og við vitum.

Lokaskráning í sumartippið er föstudaginn 9. júní og hefjum við leikinn í viku 24 eða laugardaginn 17. júní.

Þeir tipparar sem ætla að vera með í sumar þurfa að greiða kr. 6.500- inn á reikn. 117-26-3074 kt. 500775-0339 í síðasta lagi föstudaginn 9. júní. Við hefjum svo getraunaleiki ÍFR aftur þegar enski boltinn hefst í ágúst.

Getraunafréttir ÍFR fara nú í langt sumarfrí og kemur næsta fréttabréf út 17. ágúst.