Sundið er ein af elstu greinum félagsins. Sundmenn ÍFR hafa frá upphafi verið mjög sigursælir á alþjóðlegum mótum og hefur ÍFR átt keppendur í sundi á fjölda Norðurlanda- Evrópu- Heimsmeistara- og Olympíumótum fatlaðra. Innan raða ÍFR eru 3 heimsmethafar og 2 fyrrum heimsmethafar. Í sundi er keppt í tíu flokkum hreyfihamlaðra, þrem flokkum blindra og sjónskertra og einum flokki þroskaheftra. Keppt er í fjórum greinum í sundi þ.e. flugsundi, baksundi, bringusundi og skriðsundi (frjáls aðferð) og svo er fjórsund þar sem synt er ein vegalengd á hverju sundi.

Þjálfarar: Davor Hinic, Eiður Axelsson, Jón Þorgeir Guðbjörnsson og Breki Arnarson

Hátún 12 – Byrjendur

Fimmtudagar klukkan 16:00 – 16:40 / 16:40 – 17:20 / 17:20 – 18:00

Þjálfari: Davor og Eiður

Laugardalslaug – Afreksfólk

Mánudagar klukkan 16:30 – 18:30
Þriðjudagar klukkan 16:30 – 18:30
Miðvikudagar klukkan 18:30 – 20:30
Fimmtudagar klukkan 18:30 – 20:30
Föstudagar klukkan 16:00 – 18:00
Laugardagar klukkan 8:15 – 10:15

Þjálfarar: Davor og Eiður